Mjóafellshraun

Google Maps
Skjaldbreiður séður frá skjaldbreiðarhrauni. Hlöðufell til hægri

Mjóafellshraun

Mjóafellshraun er annað nafn á Skjaldbreiðarhrauni milli Mjóufjalla og Söðulhólagjár, frá rótum Skjaldbreiðar í norðri fram að Ármannsfelli og Brúnkolluhöfða í suðri. Eyfirðingavegur liggur um hraunið niður að Goðaskarði.

Mjóafellshraun í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Það, sem venjulega er nefnt Þingvallahraun (1), takmarkast að austan af Hrafnagjá (2), að norðaustan af Mjóafellshraunum (3) og Ármannsfelli (4) [...]“

„Þar fyrir norðan [Einiberjahæðir] og vestan Prestahraun, heitir Höfðaskógur (86); hallar honum lítið eitt mót suðri. Takmarkast hann að norðan af stórum grjótbala, sem snýr austur og vestur; hann heitir Brúnkolluhöfði (87), og eru þar takmörk þess virkilega Þingvallahrauns (88). Þaðan heita Mjóafells-hraun (89) alla leið að Skjaldbreið (90), frá Söðulhólagjá (91) að Mjóu-fjöllum (-fellum), (92). Sunnan-á Mjóafellshrauni eru auðsjáanleg tóftarbrot og grasblettur. Það heitir Litla-Hrauntún (93), og hefur þar líklega bær verið.“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

1. Hvar og hvernig er Mjóafell og Mjóafellshraun? Mjóafell fremra er fjallaröð austan við Lágafell. Innst er Gatfell svo Mjóafell innra. Þá kemur breitt skarð Goðaskarð. Um það lá austfirðingavegur til forna. Suðvestast af fjöllunum þremur er Fremra-Mjóafell. Hraunið austur af Goðaskarði er þakið grámosa og lynggróðri, en við Fremra-Mjóafell ber talsvert á birki-gróðri og þar er meiri grasgróður. Á því svæði er gamalt býli, Litla- Hrauntún, sem getið er, að mig minnir, í Jarðabók.“

Heimildir

Tengd örnefni