Dagmálavík

Google Maps
Ornefni Atlas Dagmalavik 3924

Dagmálavík

Dagmálavík er vík í Þingvallavatni. Hún liggur upp að túninu hjá eyðibýlinu Vatnskoti, austan við Túntanga, og var notuð sem eyktarmark þar á bæ. Örnefnið Murtusker er í vatninu fram undan víkinni, og skammt austar er Veiðitangi.

Dagmálavík í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Vestan-við Öfugsnáða er Vörðuvík (107), og vestan-við hana Dagmálavík (108); er hún austan-við Vatnskotstún. Þá er sker, sem heitir Murtutangi (109).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

48. Var ekki Dagmálavík eyktamark frá Vatnskoti? Já.“

Helga S. Melsteð, sem ólst upp í Vatnskoti, segir svo í örnefnaskrá Vatnskots frá 1982:

Meðfram Túninu að austan er Dagmálavík (37). Þar eru dagmál frá Vatnskoti; sólin kemur upp þar yfir (Dagmálahóll er í Þingvallalandi, enginn í Vatnskotslandi). Þar út af eru sker og lagnir. Gróðurfar er svipað og lýst hefur verið áður, mosi, kjarr og grjót á milli. Þannig er einnig á Veiðitanga (38), en hann er langur tangi, sem gengur út í vatnið austan við Dagmálavík, mikið notaður af veiðimönnum (yfirleitt þakinn veiðimönnum), enda var og e.t.v. er mikil veiði þar við. Veiðitangi er ekki gamalt nafn.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Dagmálavík inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni