Eyður
Eyður eru mosagrónar hraunflatir norðvestur af Tjörnum og sunnan Sauðasteina. Þær ná yfir nokkurt svæði ofan Vallavegar sem afmarkast hér um bil frá Veiðigötu í vestri að Gjábakkavegi í austri, upp við klapparhól sem nefnist Melur.
Örnefnið Eyður er einnig að finna í hrauninu norðaustur af Þórhallastöðum.
Eyður í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Skammt [frá Þuríðarvörðu] er Fuglstapaþúfa (111a). Þar austur-frá, allt að Mel (112), eru mosaflesjur skóglausar, sem heita Eyður, upp-að svonefndum Sauðasteinum (113), sem eru háir hellubalar með grasbrekkum að sunnan; snúa þeir austur og vestur.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„Hvar eru Eyður? Eyður liggja frá gamla Þingvallavegi á móts við Mel, sem er langur klapparhóll, ekki mjög hár en sléttur að ofan. Eyður hafa stefnu í vestur c.a. 150 m. breið spilda. Hraunið gljúpt og því ekki haldist mikill gróður á því.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Eyður inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar með tveimur punktum (64.24940,-21.0710 og 64.24940,-21.0657) við núverandi staðsetningu.