Hlóðavík
Hlóðavík (eða Hlóðavik) er vík í Þingvallavatni fyrir austan Öfugsnáða. Nafnið er dregið af hlóðum þar sem fólkið í Skógarkoti sauð vatn til þvotta. Uppsprettulind er á að minnsta kosti einum stað í víkinni.
Hlóðavík í frumheimildum
Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg., 1994), bls. 134:
„Suðaustur af Öfugsnáða er breið vík sem Hlóðavík heitir, en nafn sitt dregur hún af því, að þar var oft þvegin ull og þvottur frá Skógarkoti, þar sem aðeins voru brunnar heima við. Var það gert allt fram um 1925, og þætti sjálfsagt mörgum, sem eiga sinn bæjarlæk í túninu, slíkt furðu langsótt og erfið aðstaða. Dálítil tjörn er austur og upp af Hlóðavík, og myndast hún af sama vatnsrennsli sem kemur fram undan hrauninu í víkinni.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið (ritháttur: Hlóðavik) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.
Heimildir
Björn Th. Björnsson. (1994). Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg.). Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
Pétur J. Jóhannsson. (e.d.). Þingvallaþankar og lýsing eyðibýla. Örnefnastofnun Íslands.