Hlöðuhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Hloduholl B940

Hlöðuhóll

Hlöðuhóll er örnefni hjá eyðibýlinu Skógarkoti. Líkleg staðsetning hólsins er í túninu við rætur Sjónarhóls, aðeins fáeinum metrum norðaustan bæjarrústanna. Þar má greina litla hólbungu sem svipar til hefðbundinna rústa- eða bæjarhóla og grænkar fyrr en margir aðrir blettir í túninu.

Gera má ráð fyrir því að hóllinn dragi nafn sitt af hlöðu sem á honum stóð, en getið er heyhlöður fyrir ofan bæinn í Skógarkoti.

Hlöðuhóll

Líkleg staðsetning Hlöðuhóls í Skógarkotstúni. Hóllinn er í forgrunni myndarinnar og er ögn grænni en nærumhverfi sitt. Myndin er tekin neðarlega á Sjónarhóli.

í frumheimildum

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Hlöðuhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni