Hrútabrekkur

Google Maps
Ornefni Atlas Hrutabrekkur F820

Hrútabrekkur

Hrútabrekkur eru grónar brekkur fyrir suðaustan Skógarkot. Þær eru staðsettar vestan í aflöngum hól upp við gamla sýsluveginn um Þingvallahraun, skammt fyrir ofan örnefnin Leiti og Lágubrún. Skógarbletturinn vestan við Hrútabrekkur kallast Hrútabrekkuskógur.

Hrútabrekkur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Að norðvestan við Lágbrún er ávalur jafn halli að henni, sljettur að ofan, sem heitir Leiti (122); nær það frá Stekkjarvörðubölum með Lágbrún að Hrútabrekkum (123), sem eru vestan í löngum grjóthól frá norðri til suðurs, austan vegarins.“

Vestur-að Hrútabrekkum, að Sauðasteinum, heitir Hrútabrekkuskógur (130).“

Rjett fyrir ofan Hrútabrekkur er brött klöpp í veginum, sem heitir Pelahella (133).

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Hrútabrekkur inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni