Leiti
Leiti er aflöng hæð norðvestan við Lágubrún, sem nær frá Hrútabrekkum í suðri inn að Þórhallastöðum og Stekkjarvörðubölum í norðri. Klukkustígsleið liggur þar um Leiti.
Leiti í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Að norðvestan við Lágbrún er ávalur jafn halli að henni, sljettur að ofan, sem heitir Leiti (122); nær það frá Stekkjarvörðubölum með Lágbrún að Hrútabrekkum (123), sem eru vestan í löngum grjóthól frá norðri til suðurs, austan vegarins. Leiti nær einnig alla leið heim að Gamla-stekk (124); hann er norðvestast á Leitinu og var notaður frá Skógarkoti.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Leiti inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu (64.25864,-21.0555; 64.25669,-21.0568 og 64.25481,-21.0596).