Hrútabrekkuskógur

Google Maps
Ornefni Atlas Hrutabrekkuskogur 8751

Hrútabrekkuskógur

Hrútabrekkuskógur er skógarblettur fyrir sunnan Skógarkot. Hann dregur nafn sitt af Hrútabrekkum, sem eru upp við gamla sýsluveginn um Þingvallahraun, og teygir sig frá þeim vestur að Sauðasteinum. Þar liggur Veiðigata niður að Þingvallavatni. Sunnan og austan við skóginn heita Eyður og Lágabrún.

Hrútabrekkuskógur í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Vestur-að Hrútabrekkum, að Sauðasteinum, heitir Hrútabrekkuskógur (130).“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Hrútabrekkuskóg inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu (64.25515,-21.0652 og 64.25331,-21.0634).

Heimildir

Tengd örnefni