Aðsóknarmet í haustlitagöngu

Hin árlega haustlitaganga Þjóðgarðsins á Þingvöllum var haldin sunnudaginn 20. september. Tvö hundruð og tíu gestir mættu í gönguna, sem bar titilinn Týndar leiðir á Þingvöllum: Hraunfólkið í Skógarkoti. Mun þetta vera ein fjölsóttasta fræðsluganga þjóðgarðsins frá upphafi.
 
Gunnar Grímsson, Tryggvi Jóhönnuson og Snædís Einarsdóttir, landverðir í þjóðgarðinum, stóðu að göngunni og nutu aðstoðar Vignis Sölva Þormars.
 
Í Skógarkoti

Hraunfólkið í Skógarkoti var aðalumræðuefnið í haustlitagöngu þjóðgarðsins árið 2026. Gunnar Grímsson stendur ofan á tröðunum í Skógarkoti. Við hlið hans stendur Vignir Sölvi Þormar með hátalara.

Farið var yfir Skyrklifshóla, fram hjá Kolsgjá og þaðan inn í eyðibýlið Skógarkot, þar sem boðið var upp á veitingar að hætti hraunbúa: rúgbrauð með heimagerðri kindakæfu, nýuppteknar rófur og skyr (sem gestgjafar klyfjuðu yfir Skyrklifshóla) með íblönduðum berjum úr Þingvallahrauni.

Skyrklifshólar

Gestir klífa Skyrklifshóla. Í bakgrunni er djúp gjá, sem gæti verið hin eina og sanna Kolsgjá.

Gestir fengu sér síðan sæti í bæjarrústum Skógarkots og fræddust um daglegt líf í hjarta Þingvallahrauns. Notast var við áður óbirta háskólaritgerð frá 1996 eftir Ingibjörgu Jónu Helgadóttur sem lýsir Skógarkoti á einstakan hátt.
 
Ritgerðin er byggð á viðtölum við systurnar Herdísi og Gretu sem voru dætur Jóhanns Kristjánssonar og Ólínu Jónsdóttur, seinasta hraunfólksins í Skógarkoti. Að því loknu var gengið um hina gömlu Miðhólagötu sem hefur verið týnd um áratuga skeið en var endurheimt skömmu fyrir gönguna.
 
Í Skógarkoti

Boðið var upp á rúgbrauð með heimagerði kæfu, sem var elduð kvöldið áður, nýuppteknum rófum og skyri með rjóma og bláberjum úr Þingvallahrauni.

Í lok ferðarinnar var ný grein um Skógarkot birt á heimasíðu þjóðgarðsins, sem byggð er á ritgerðinni (og er þar nú aðgengileg) og mörgum öðrum heimildum. Greinin er hluti af umfangsmikilli örnefnasamantekt sem á sér stað í þjóðgarðinum, en nú er búið að birta umfjallanir um ríflega 250 örnefni innan marka þjóðgarðsins.
 
 
 
Áning í Skógarkoti

Tryggvi Jóhönnuson býður gestum upp á skyr með bláberjum, krækiberjum og hrútaberjum úr Þingvallahrauni.

Í greininni um Skógarkot má einnig sjá ljósmyndir af bænum sem hafa aldrei áður verið birtar opinberlega. Við þökkum Jónu Kristjánsdóttur og Halldóri Pétri Þrastarsyni, afkomendum fólksins í Skógarkoti, innilega fyrir hjálpina við að finna þessar gömlu heimildir og gera okkur kleift að miðla þeim áfram. Einnig þökkum við Joshua William Needham fyrir ómetanlega hjálp við að hreinsa Miðhólagötu og varðveita þannig merkar samgönguminjar, en gamlar leiðir teljast nefnilega til fornleifa og njóta friðunar.
 
Við þökkum gestum innilega fyrir komuna; þátttaka ykkar og sýndur áhugi er okkur mikil hvatning til frekari dáða og við hlökkum til að sjá ykkur aftur í framtíðinni. Ef einhver ykkar lumar á enn frekari fróðleik um Skógarkot, eða aðra staði innan þjóðgarðsins, þá höfum við mikinn áhuga á öllum upplýsingum sem hægt er að veita og miðla áfram til gesta þjóðgarðsins.
 
Á Miðhólagötu

Þátttakendur voru þeir fyrstu til að ganga Miðhólagötu í marga áratugi.