Brunnklettar

Google Maps
Ornefni Atlas Brunnklettar E30e

Brunnklettar

Brunnklettar (eða Brunnhólar) eru tveir lágir hólar fyrir utan túnið í Skógarkoti. Þeir eru skammt fyrir austan brunn bæjarins og draga nafn sitt líklega af honum. Blasa þeir við þegar gengið er að brunninum frá bæjarhúsunum. Svokölluð Gapahæðagata hefur líklega legið frá bænum nálægt Brunnklettum.

Fjárhúsatóft er reist við túngarðinn norðan við Brunnkletta; þar fyrir innan var stöðull bæjarins. Hrauntúnsgata liggur þar inn að eyðibýlinu Hrauntúni.

Brunnhólar
Brunnklettar

Brunnklettar austan við túnið í Skógarkoti. Sjónarhóll í bakgrunni.

Brunnklettar í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Austan-við túngarðinn eru litlir klapparhólar; þeir heita Brunnklettar (143).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

58. Eru Brunnklettar rétt við brunninn? Eru þeir grónir að einhverju leyti? Brunnklettar eru suðaustur frá fjárhúsunum, sem voru spöl austan við brunninn. 2 hólar, annar snýr norður-suður, sléttur að ofan, hinn er styttri og klofinn. All-djúp gróin laut túnmegin við þá.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti örnefnið inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Örnefnið kallast „Brunnklettar“ í ritgerðinni Þingvallaþönkum, sem hann ritaði á svipuðum tíma, en örnefnið kallast „Brunnhólar“ í annarri stafrænni útgáfu af örnefnamerkingu Péturs.

Heimildir

Tengd örnefni