Lágabrún
Lágabrún (eða Lágbrún) er svæði við neðsta hluta Brúnar, vestan Hrafnagjár. Örnefnið er skilgreint sem lægð eða skógarbelti sem liggur frá Mel í suðri inn að Stekkjarvörðu í norðri. Vestan Lágubrúnar er Leiti og fremst á því Hrútabrekka.
Tvær alfaraleiðir liggja um Lágubrún: Klukkustígsleið frá Þórhallastöðum um Hábrún og Klukkustíg og Gjábakkavegur frá Skógarkoti niður að Vatnsviki og áleiðis að Gjábakkastíg og Hallstíg.
Lágabrún í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Frá Gjábakkastíg vestur að Tjörnum (16) hækkar hraunið norður-eftir, norður fyrir Þingvallahelli (17); er svo að mestu leyti flatt norður-af Sigurðarseli (18) og Hellishæð (19) og vestur-að Hábrún (20), en hallar þaðan vestur-að Mosalág (21) og Lágbrún (22). Þetta heitir einu nafni Brún (23). Þetta var þrautastaður, að því er sauðbeit snerti á vetrum, bæði fyrir hraunbúa og aðra; jafnvel var fje rekið þangað til beitar austan úr Laugardal.“
„Austur frá Klukkuhólum, uppi á Brúninni, þar sem hún er hæst, er Hábrúnarklettur (42); er það einnig grjóthóll og ekki stór. Sunnan og vestan í Brún er skógur þjettur og hraunið grösugt, svo að þar sjest valla á stein eða flag, nema þar, sem einstakir stórir grjóthólar eru, þrátt fyrir, að þar var allt af mest áníðslan með fjárbeit og skógarhöggi.“
„Skammt norður frá Tjörnum liggur vegurinn yfir bratta klapparhæð; heitir hún Melur (116). Þaðan gengur lægð til norðausturs, vestan-undir Brúnar-hallanum. Það heitir Lágbrún (117); nær hún allt að stórum grjóthól, sem lokar fyrir norðurenda hennar. Á hól þessum er varða, sem heitir Stórastekkjarvarða (118), og er hún beint niður frá áðurnefnd- um Nyrðri-Klukkuhól (119).“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar þá í spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„9. Hvar og hvernig er Hábrún? Hábrún hvers? En Lágbrún? Hábrún er svæði sem liggur frá Svínhólum, í suðvestur, hefur sömu stefnu og Hrafnagjá, allbreið spilda, vel viði vaxin og grösug. Hún nær vestur fyrir gamla Þingvallahelli og taka þar við hallar, viði vaxnir niður að vatninu. Norður af Hábrún miðri eru 2 strýtumyndaðir hólar sem heita Klukkuhólar. Niður af nyrðri hólnum er annar lágur hóll, með velhlaðna vörðu, sem er kölluð Stekkjarvarða, en í vestur frá henni er all þétt skógarbelti, ekki mjög breitt, sem kallað var Lágbrún. Hún nær vestur að Mel, sem er langur klapparbali, austan við gamla Þingvallaveginn, sem liggur að Skógarkoti.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Lágubrún (ritháttur í nefnifalli: „Lágabrún“) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu. Hann merkti örnefnið með þremur punktum í eystri hluta lægðarinnar við brekkubrúnina, ofan við Mel og að Klukkustígsleið, þar sem skógur hefur tekur við af mosagróðri.