Ölkofrahóll

Google Maps
Ornefni Atlas Olkofraholl 616F

Ölkofrahóll

Ölkofrahóll er hraunhóll suðvestan við eyðibýlið Þórhallastaði. Hóllinn er syðst á Stekkjarhæð og norðaustan við hann er djúpt jarðfall sem nefnist Ölkofradalur. Annað smærra jarðfall er við suðurhlið hólsins. Nafnið tengist sögusögnum um Þórhall „ölkofra“ sem talinn er hafa búið á Þórhallastöðum.

Hóllinn sjálfur er að mestu mosavaxinn og sprunginn á toppnum. Varða er sögð standa á honum, og sunnan við hann liggur hin forna Klukkustígsleið.

Ölkofrahóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

Ölkofrastaðir eða Gamli-Stekkur eru suðaustan-undir hárri hæð, sem heitir nú Stekkjarhæð (127), og er þar skjól talsvert í norðanveðrum. Vestan-í hæðinni er mjög djúpur dalur með bröttum brekkum og klapparbrúnum, sem einnig er kenndur við Ölkofra, og vestan-við dalinn er Ölkofrahóll (129).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

52. Er Ölkofradalur stór, gróinn? Hvar lá gatan að Ölkofra? Hét hún einhverju nafni? Ölkofradalur er vel gróinn alldjúpur með gamlan brunn. Vestasti dalurinn, vestan undir Ölkofrahól.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í Þingvallaþönkum sem hann ritaði í kringum 1984–1985, bls. 9:

Klukkustígur á Hrafnagjá hefur verið önnur af tveimur aðalleiðum frá Þingvöllum yfir gjána til forna, hin var Hallstígur. Leiðin lá frá Þingvöllum fram hjá Skógarkoti og útaf þessum gamla hraunvegi (sem lá niður í Vatnsvik) hjá Ölkofrahól, framhjá gamla býlinu Þórhallastöðum, austur á milli Klukkuhóla, yfir Hábrún á Klukkustíg.“

Pétur bætir við á blaðsíðu 14 í sama riti:

„Í suðaustur frá Skógarkoti, þar sem kotið Ölkofra var og síðar stekkur, er langur og nokkuð hár klapparhryggur, sem skýlt hefur bænum fyrir norðanátt. Vestast á þessum klapparhrygg er hár hóll, sem Ölkofrahóll heitir. Í klapparhryggnum austan við hólinn er mjög djúp laut, Ölkofradalur. Í vesturenda lautarinnar er tjörn, sem sjaldan þraut, nema í langvarandi sumarþurrkum eða í vetrarhörkum. Í túninu sunnan við klapparhrygginn er brunnur, sem ég hef aldrei komið að vatnslausum. Framan nefnd örnefni benda eindregið til þess að þarna hafi bær Ölkofra verið, Þórhallastaðir.“

Pétur merkti Ölkofrahól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Björn Th. Björnsson listfræðingur segir svo í bók sinni Þingvellir – staðir og leiðir (4. útg., 1994), bls. 148:

„Þegar svo langt er komið, að túnið í Skógarkoti blasir við, er hár hraunhóll á hægri hönd, mikill um sig og sprunginn, og heitir Ölkofrahóll. Varða beinir götu þangað, og efst á hólnum er varða. Norðan við hólinn er ákaflega djúp laut með lind í botni eða vatnsauga, en það vatnsból þrýtur sjaldan og var þrautarból Skógarkotsmanna í löngum þurrkum.“

Ingibjörg Jóna Helgadóttir lýsir ullarþvotti og -þurrkun í byrjun 20. aldar í ritgerð sinni um Skógarkot, bls. 12, og byggir á viðtölum við systurnar Gretu og Herdísi Jóhannsdætur frá Skógarkoti:

„Þórhallastaðir – Ölkofri. Hlaðan stóð við fjárhúsin. Hesthús og fjárhús stóðu sér. Það var lítið tún við „Stekk“ – gamalt býli sem áður hét Þórhallastaðir. Var það gamalt eyðibýli suðaustur frá Skógarkoti sunnan undir Ölkofrahól, en þar eru rústir, brunnur og túnbleðill umhverfis. Þarna geymdi Jóhann [Kristjánsson] kindur á veturna. Vestan Ölkofrahóls liggur Ölkofradalur, djúp kvos milli klapparhóla og í henni vatnsstæði sem þornar í þurrkatíð. Á Þórhallastöðum bjó Ölkofri, sem bruggaði þingheimi bjór í eina tíð og brenndi Goðaskóg. Sumir telja Þórhallastaði eldra nafn á Skógarkoti.“

Heimildir

Tengd örnefni