Stekkjarhæð
Stekkjarhæð er klapparhæð fyrir austan Skógarkot. Hún er bogadregin í laginu, um 200 metra löng og snýr frá norðaustri til suðvesturs. Sprunga liggur eftir henni endilangri. Suðvestast á Stekkjarhæð er djúpt jarðfall sem nefnist Ölkofradalur og þar fyrir suðvestan er Ölkofrahóll.
Eyðibýlið Þórhallastaðir er staðsett suðaustan undir Stekkjarhæð. Það var á síðari tímum kallað Gamli-Stekkur, eftir stekk Skógarkotsbænda, og dregur hæðin nafn sitt af honum. Stekkjargata liggur um hæðina á milli Skógarkots og Þórhallastaða.
Stekkjarhæð í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Ölkofrastaðir eða Gamli-Stekkur eru suðaustan-undir hárri hæð, sem heitir nú Stekkjarhæð (127), og er þar skjól talsvert í norðanveðrum. Vestan-í hæðinni er mjög djúpur dalur með bröttum brekkum og klapparbrúnum, sem einnig er kenndur við Ölkofra, og vestan-við dalinn er Ölkofrahóll (129).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Stekkjarhæð inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.