Pelahella
Pelahella er hraunklöpp á Gjábakkavegi, tæpum 300 metrum suðaustan Skógarkots. Hin forna Klukkustígsleið klofnar frá veginum nálægt Pelahellu og liggur þaðan til austurs fram hjá Ölkofrahól. Þar fyrir austan er eyðibýlið Þórhallastaðir, þar sem Þórhallur „ölkofri“ er talinn hafa búið til forna og bruggað öl handa þingmönnum.
Horft til suðausturs frá Pelahellu. Hrútabrekkuskógur er hægra megin við götu.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Pelahella í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Rjett fyrir ofan Hrútabrekkur er brött klöpp í veginum, sem heitir Pelahella (133). Vestur-af henni, austan Veiðigötu, eru smáhólar, sem heita Gráuklettar (134).“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Pelahellu inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.