Þverhóll

Google Maps
Ornefni Atlas Thverholl 84Cb

Þverhóll

Þverhóll er örnefni í hrauninu mitt á milli eyðibýlanna Skógarkots og Þórhallastaða. Hóllinn snýr frá suðvestri til norðausturs og eftir langhlið hans, sem snýr þvert á áðurnefnd eyðibýli, liggur lítil sprunga. Umhverfis hann er barrtrjáareitur sem gróðursettur var á miðri 20. öld.

Sunnan Þverhóls liggur stekkjargata á milli Skógarkots og Þórhallastaða. Skammt norðan við Þverhól er hóllinn Skyggnir og á milli þeirra liggur Gapahæðagata frá Skógarkoti inn Gapahæðum.

Þverhóll í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Milli túnsins í Skógarkoti, norðan við götu, sem liggur að Ölkofra, er dálítill klapparbali, sem heitir Þverhóll (142).“

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:

Þverhóll? Sand-Gíslahæð? Músarhólar? (eru þeir grónir?) Þverhóll er austan við túnið, aðeins norðaustar en Skyggnir, nokkuð langur mosagróinn hóll sprunginn, þar fyrir austan við götuna, sem liggur um Mosalág er Sand-Gíslahæð. Um tilefnið veit ég ekki.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, merkti Þverhól inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni