Eyður (nyrðri)

Google Maps
Ornefni Atlas Eydur 5Cdc

Eyður

Eyður eru mosagrónar flatir í lítilli lægð norðaustan Þórhallastaða. Þær koma í eiginlegu framhaldi af Lágubrún og eru aðskildar henni af Stekkjarvörðu og samnefndum bölum í suðri. Að norðanverðu liggja Eyður inn að Sand-Gíslahæð og Mosalágarhæð en upp að Sláttubrekkum og Hríshöfðum í austri.

Tvær gamlar götur frá Skógarkoti liggja um Eyður. Sú nyrðri, Gapahæðagata, liggur yfir að Mosalágarhæð og þaðan inn að Gapahæðum og Raftviðarhlíð. Sú syðri kallast Hellisgata og liggur hér um bil frá Stekkjarhæð yfir að fjárskjóli Skógarkotsbænda á Hellishæð. Þar að auki liggur Þingvallavegur um Eyður milli Leira og Klukkustígs.

Eyður í frumheimildum

Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:

„Norður frá [Klukkuhólum], einnig vestan í hallanum, er Viðarklettsskógur (39), með kletti þeim, er skógurinn ber nafn af, norðast og austast sunnan-undir svonefndum Höfðum (40); nær skógur þessi austur á fulla hæð Brúnar og niður að Eyðum (42), sem eru skógarlausar mosaflesjur.“

Heimildir

Tengd örnefni