Brúnir
Brúnir eru hækkanir í Þingvallahrauni fyrir sunnan eyðibýlið Hrauntún, þaðan sem þær ná niður að Magnúsarklettsskógi. Undirheiti þeirra eru Efstabrún, Miðbrún og Neðstabrún (Smalavörðubrún) eftir hæð þeirra yfir sjávarmáli. Brúnir þekkjast meðal annars af því, að þær eru talsvert mosagrónari en nærliggjandi hraunbreiður og skarta stórum, aflöngum hraunhryggjum. Um Brúnir liggur gömul gönguleið, Hrauntúnsgata, á milli Hrauntúns og Skógarkots.
Örnefnið Brúnir var einnig notað yfir svæði norðaustan Hrauntúns. Þar stendur Brúnavarða á einum stað og þó nokkuð austar er svokallaður Brúnkolluhöfði. Þá er örnefnið Brún (sem skiptist í Hábrún og Lágubrún) notað yfir allstórt svæði í hrauninu fyrir vestan Hrafnagjá.
Brúnir í frumheimildum
Ásgeir Jónasson frá Hrauntúni segir svo í grein sinni Örnefni í Þingvallahrauni í Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1937–1939:
„Austan við [Jafningja] liggur hin nýja gata upp að Hrauntúni, sem rudd var um 1910 til 1912; áður var gatan upp svo-nefndar Brúnir (154).“
„Þaðan frá Djúpudölum, hækkar hraunið norður-eftir, og er það kallað einu nafni Brúnir (158). Er fyrst Neðsta-brún (159); austast á henni er Smalavarða (160); er það dálítil grjóthrúga, norður og upp frá Strýtuhólum (161); brúnin er einnig kölluð Smalavörðubrún (162). Vestur frá henni, norður frá Djúpudölum, eru hólar nokkrir, er heita Hrútaklettar (163). Dálítið ofar en Neðsta-brún er Mið-brún (164), þá Efsta-brún (165). Þar sjezt fyrst heim að Hrauntúni, þegar þessi gamla gata er farin. Austur af Miðbrún eru Stórhólar (166) tveir [...].“
„Norðaustur frá Hrauntúnsbæ gengur annar slakki norðan Skygnira, norðaustur að Brúnavörðu (189). [...] Þaðan norð-austur frá [Jarpmerarhól] eru Brúnir með samnefndri vörðu á hæsta hólnum austan [Víðivallagötu] (195); er hún góðan kipp suður frá Víðivöllum og suð-vestur frá Mjóafellsvörðu, sem áður hefur verið getið.“
Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, svarar spurningalista (í kringum 1980–1984) sem starfsfólk Örnefnastofnunar samdi upp úr örnefnalýsingu Ásgeirs Jónassonar:
„73-74. Hvar er Brúnavarða? Sést hún enn? Tilgangur? Gott væri að fá nánari lýsingu og staðsetningu á Sandskeiðum? Brúnavarða er á efstu brún á leið að Hrauntúni, frá Skógarkoti. Þaðan mun fyrst sjást til bæjarins. Sandskeið er árunnið svæði, í suður frá Sleðás, neðst þar í gegn, liggur forn gata niður Þrívarðnaskóg og austan við Leiragjá niður á Þingvöll um Sandhóla.“
Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti undirheiti Brúna (Efstubrún, Miðbrún og Smalavörðubrún) inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar sunnan Hrauntúns.